Engin jól án Söru

Í dag er heimsendir og hvað er betra á þessum síðasta degi veraldar en að gúlla besta bakkelsi í sögu mannkyns – sjálfa drottningu smákakanna: Söru Bernharð. Naglinn er ekki mikið gefin fyrir smákökur en gæti hinsvegar gúffað líkamsþyngd sína í Sörum án þess að blikka auga.       Naglinn vatt sínu kvæði í […]

Read More…

Búðingablæti

Naglinn er með allskonar blæti, vöðvablæti, bragðdropablæti, grautarblæti og búðingablæti. Hið síðastnefnda stafar eflaust af ólympísku Royal búðingsáti á æskuheimilinu í Fossvoginum því einhver nostalgíufiðringur laumast niður hryggjarsúluna þegar hnausþykkur massinn gumsast úr skeiðinni upp í galopið ginið. Allt sem er þykkt, þykkt og mikið, mikið gleður óendanlegt magamál og matarlyst Naglans. Áður hefur verið […]

Read More…

Franskt ristabrauð lummur

French toast er bragðafbrigði sem framkallar litla fullnægingu í munnholinu og fær því að slæðast með í eggjahvítupönnsur með reglulegu millibili.  Naglinn snæðir slíkar lufsur samhliða grautargleði í morgunsárið og sama prinsipp gildir fyrir þær eins og grautinn: Einhæfni er leiðin til glötunar.       Naglinn uppgötvaði þessa dásemd í pönnsur þegar bragðdropar frá […]

Read More…

Möndluhjúpaður kjúlli

Þessi er virkilega djúsí og krönsjí undir tönn sem gerir át alltaf skemmtilegra, sérstaklega fyrir fólk með áferðarblæti. Hver vill sveittan KFC þegar svona gúmmulaðishollusta er á boðstólum?     Innihald: Kjúklingabringa Hakkaðar möndlur (u.þ.b 20 g er nóg fyrir eina meðalstóra bringu) Parmesan ostur Hveiti/spelt hveiti Eggjahvíta Svartur pipar + Salt + cayenne duft […]

Read More…

Grænkálflögur….einu sinni smakkað þú getur ekki hætt

Naglinn sá uppskrift að grænkálsflögum fyrir lifandis löngu en fannst hún svo óspennandi að hún fékk aldrei séns hjá svartholinu. En eftir að allir og amma þeirra lofsungu þetta framandi kál í flögumynd var ákveðið að draga í land með fordómana. Grænkál heitir “kale” eða “borecole” á útlenskunni og er í Brassica oleracea familíunni ásamt […]

Read More…

Næstum því rísalamand

Jólin lúra handan við hornið og þeim fylgir allskonar gleði í áti.  Í raun er vambarkýling það eina sem Naglinn sér skemmtilegt við jólin enda rammheiðinn Skröggur með meiru, og dauðleiðist allt þetta vesen, prjál, glingur og gaul. Boðskapur jólanna er löngu týndur undir kreditkortakvittunum og gleymdur og grafinn í háþrýstingsspenningi í Kringlunni. Eitt uppáhalds átið […]

Read More…

Hvítt-súkkulaði-kókos-unaður – prótínsjeik

Naglanum finnst prótínsjeikar mjög skemmtilegt át en þeir þurfa að vera þykkari en trélím og snæddir með skeið til að vekja hamingju í hjartanu. Bóndinn er með meira lattelepjandi tungu og vill hafa sínar kombinasjónir drekkanlegar úr glasi. Þar sem hann er stríðalinn og ofdekraður af spúsu sinni í matarmálum er að sjálfsögðu orðið við […]

Read More…

Spaghetti bolognese – Naglavætt

Eitt það besta sem Naglinn veit er hakk spakk eða Spaghetti Bolognese eins og það heitir víst á frummálinu.  En þessi réttur er oft sósaður í kaloríum en í meðhöndlun Naglans er hægt að gera hann horaðri og hollari.   Naglinn er ekki hrifin af vakúmpökkuðum aukefnaúðuðum strimlum úr súpermarkaðnum og kaupir því Klump af […]

Read More…

Súkkulaðiís um háskaðræðistímann

Þið sem haldið að hollusta sé eingöngu kjúlli og brokkolí eruð svo langt aftur á svörtustu miðöldum að þið megið búast við heimsókn frá Hróa Hetti, enda mataræði ykkar líklega svipað spennandi. Frekar þið en Naglinn. Það má kokka endalaust af gúmmulaði úr hollu hráefni, eina sem þarf er ímyndunarafl og sköpunargleði.  Ef við höldum […]

Read More…

Hollustuvöfflur

Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu? Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat. Heilsu vöfflur 2 egg+ 1 eggjahvíta 3 tsk NOW psyllium Husk (má sleppa […]

Read More…