30 daga matarboð með Vigdísi

Ímyndaðu þér að þu ætlir að bjóða Vigdísi Finnbogadóttur í mat allan janúar.   Sæl Vigdís. Gakktu í bæinn. Við byrjum fyrstu 10 dagana á að drekka bara græna djúsa því við þurfum að hreinsa okkur af gjálífi desember mánaðar. Við þurfum að refsa okkur fyrir allar Sörurnar og blóðga bakið fyrir Nóa konfektið.   […]

Read More…

Naglinn fór í búðina

Naglinn fór í búðina.   Í grænmetisdeildinni var kona í yfirþyngd.   Annar viðskiptavinur sagði: “Hey feitabolla. Veistu ekki hvað er óhollt að vera svona spikaður. Farðu í ræktina. Fylltu körfuna af gúrkum, ekki veitir þér af”   Við kjötborðið var grannvaxin kona að kaupa sér nautahakk   Konan við hlið hennar sagði: “Þetta er […]

Read More…

Heilsumelur og vegbúi

Í Ammeríkunni er Naglinn búin að:   Vera “on the road” í Kaliforníu í fimm borgum og allavega þremur bæjum Gista á hótelum, mótelum og íbúðum Æfa samt á hverjum stað.   Borða hafragrautinn sinn á hverjum morgni. Hvort sem er uppúr Sistema nestisboxi á hóteli eða skál í íbúð.     Naglinn er líka […]

Read More…

Vertu vinur þinn í dag

Þú ákveður að kíkja í heimsókn til Siggu vinkonu. Ding dong.   Um leið og Sigga opnar hurðina horfirðu upp og niður á hana og segir:   “Ojjj. Sjá þennan maga. Og símastauralærin. Viðbjóður.”   Þið labbið inn í eldhús og setjist yfir kaffi, sem Sigga afsakar að hafi orðið aðeins of sterkt hjá sér. […]

Read More…

Naglinn vs. Bieberinn

Ekki einasta eru Bieberinn og Madsinn á Íslandi, heldur hefur Ragga Nagli gert víðreist um stórasta land í heimi undanfarnar tvær vikur. Naglanum þykir þó ansi mikið á sig hallað í dálkaplássi fjölmiðlanna í samanburði við gaulandi kanadískan unglingsdreng. Það er ekkert talað á Bylgjunni um að Naglinn hafi notað klósettið á bensínstöðinni N1 á […]

Read More…

Stelpan og konan

Naglinn gantaðist fyrir skömmu á Fésbókinni um atvinnuleysi lifrar sinnar því hún fengi hvorki alkóhól, nikótín, tjöru né lyfjaskammta til að vinna úr. Einhver skildi eftir athugasemd við þá stöðuuppfærslu um að þetta væri nú leiðinlegt líf (“Boring life”).   Sem betur fer þarf Naglinn ekki áfengi, sígarettur og verkjalyf til að eiga innihaldsríkt og […]

Read More…

Þín eigin hreysti

    Þú getur verið grannur eða þybbinn. Með sýnilega vöðva, heflaðan sixpakk, eða ávalar línur og mjúkan maga Þú getur æft 3x í viku eða 10x í viku Þú getur æft í 30 mínútur eða 2 tíma Þú getur labbað á höndum eða bara gert lítinn kollhnís Þú getur deddað 30 kíló eða 100 […]

Read More…

Utan þjónustusvæðis

Utan þjónustusvæðis Heilsusamlegar ráðleggingar fyrir heilsumeli á faraldsfæti   Hvort sem leiðin liggur útfyrir landsteinana eða bæjarmörkin er fólk með skema í hausnum um að nú eigi að vera góður við sig. “Ég er í fríi og má sukka þar til vélindað fyllist.” “Ég ætla sko EKKI að mæta í ræktina og nú skal étið […]

Read More…

Ekki-nógan

Við þekkjum öll dagana þar sem við vöknum og hefjum niðurrifið um leið og glyrnurnar mæna í spegilinn. “Bumban er of stór. Rassinn of feitur. Lít út eins og illa vafin rúllupylsa í hverri einustu spjör í skápnum.” Allir þekkja líka dagana þar sem andlitið fær sína útreið af fúkyrðum. “Ég þarf sérstaka ferð í […]

Read More…

Snákaolía uppseld

Dagur í lífi Naglans  Sítrónuvatn slurkað á fastandi maga fyrir morgunverð svo ristillinn stíflist ekki. Þurfti reyndar að fara í fjórar búðir því sítrónur voru uppseldar. Greinilega fleiri en Naglinn sem vita hvað er hættulegt að hreinsa ekki út þarmana í upphafi dags. Beikon, egg og mæjó í morgunverð því kolvetni eru Satans og spika […]

Read More…