Ekki einasta eru Bieberinn og Madsinn á Íslandi, heldur hefur Ragga Nagli gert víðreist um stórasta land í heimi undanfarnar tvær vikur.
Naglanum þykir þó ansi mikið á sig hallað í dálkaplássi fjölmiðlanna í samanburði við gaulandi kanadískan unglingsdreng.
Það er ekkert talað á Bylgjunni um að Naglinn hafi notað klósettið á bensínstöðinni N1 á miðvikudaginn. Engar símamyndir finnast til sönnunar en það var sturtað niður. Ég lofa.
Ekkert talað um hinar fjölmörgu járnrífingar í World Class þar sem holdið vafðist utan um galvaníseraðar stangir og rumt og rymjað.
Það er ekkert talað um í Morgunblaðinu um margar ferðir Naglans í bakaríið að kaupa skonsu eftir æfingu.
Ekki orði minnst á RÚV að kempan hafi borðað kjúkling og sætar kartöflur á uppáhalds heilsustaðnum Ginger.
Eða slafrað gómsætan íslenskan heitreyktan lax og makríl í bílförmum frá Ópal sjávarfangi.
Eða keypt alíslenskan þrumara og flatkökur í Bakaríinu við brúna á Akureyri.
Ekki einn einasti stafkrókur ritaður í blöðin um fyrirlestra Naglans á Hvolsvelli og Hveragerði í bæði skiptin fyrir stappfullu húsi þar sem farið var yfir hugsanagildrur, frestunaráráttu, markmiðasetningu, og verkfæri til að festa heilsuhegðun í sessi.
Engin fréttamynd af hinum fjölmörgu bókaáritunum á Heilsubók Röggu Nagla.
Þá hefur ekkert verið fjallað í sjónvarpsfréttum um tvö stórkostlega vel heppnuð matreiðslunámskeið Nettó og NOW en yfir þeim hvílir mikil leynd þar til myndir hafa verið birtar opinberum vettvangi (og myndavélasnúran kemur í leitirnar).
Þá veitti Naglinn heilsuráðgjöf á NOW vörunum og fleira eðal heilsustöffi í Nettó Mjódd og Granda. Engir papparassar mættu á staðinn.
Einnig sást til hennar á Akureyri með eina unga óvopnaða fylgdarkonu á Yaris bílaleigubíl frá Hertz.
Í höfuðstað Norðurlands veitti Naglinn ráðgjöf á Heilsudögunum í Nettó, Glerártorgi. Það vakti þó athygli fjölmiðla í formi útvarpsauglýsingar um tímasetningu viðverunnar.
Á Akureyri fór Ragga á Rub 23 og borðaði dýrindis hrefnusteik.
Öllum var sama…. nema Grænfriðungum.
Það kom enginn túristi og photobombaði sjálfuna með Leifi Eiríks.
Í næstu reisu ætlar Naglinn að bjóða ungum drengjum uppá hótelherbergi.
Eða stinga sér til sunds í ísköldu gljúfri í nærbrók einni fata.
Eða bara spila fótboltatölvuleik….