Hér er uppskrift að túnfisksalati sem Naglinn lifði á í NYC. Þess vegna er þessi pistill enskuskotinn með meiru.
Auðvitað “low-fat”, og stúfullt af prótíni.
1 dós túnfiskur í vatni
1/2 – 1 dós hreint skyr/5% sýrður rjómi/kotasæla
Sólþurrkaðir tómatar, olían þerruð af með eldhúsrúllu. Skornir í strimla
Steinselja söxuð smátt
Öllu blandað saman í skál….and enjoy.