Ódýrasta en öflugasta fitubrennsluefnið á markaðnum

  Viltu missa fitu fyrir jólin? Tálga smjör af skotti. Skafa mör af mallakút. Rífa lýsi af lærum.   Á markaðnum er skothelt og skítódýrt fitubrennsluefni sem svínvirkar.   Töfralyf. Undraefni. Magískur kokteill.    Þetta efni er eitt mest rannsakaðasta efnið á markaðnum. Þegar þeir sem taka ekki inn þetta efni inn eru bornir saman […]

Read More…

Google er ekki vinur þinn í fitutapi

Samkvæmt veraldarvefnum eru margar leiðir til að bræða lýsi af maga, rassi og mjöðmum. ➡️Gera haug af “brennsluæfingum” ➡️Drekka kaffi með slummu af smjörva ☕ ➡️Gera átta mínútna kviðæfingarútínu 👀 ➡️Ekki borða í 16 tíma á sólarhring.. nei 15 tíma… sorrý 17 tíma… 🍽️ ➡️ Hanga á horriminni tvo daga í viku og stunda svo átorgíu hina fimm dagana 🍩🎂🍰🍫 […]

Read More…

Kex og kruðerí … afsprengi áttunda áratugarins

Á áttunda áratugnum varð sprenging í matvælaiðnaði og úr fabrikkum á Vesturlöndum streymdu matvæli í álpappírsumbúðum, pappapakka og plast sem áttu að flýta fyrir snæðingi og eldamennsku.   Það sem kallast í daglegu tali “unninn matur.”   Seríós. Böggles. Örbylgjudinner. Skinkubréf. Dósamatur. Pakkasúpur. Djúsþykkni. Kartöfluflögur. Samsölubrauð. Kex.   Við sem ólumst upp á þessum tíma […]

Read More…

Viltu hraðari grunnbrennslu?

Ertu að spóla í hjólförunum í fitutapi? Alveg sama hvað þú borðar lítið og æfir mikið þá er buxnastrengurinn alveg jafn þröngur? Þú borðar minna og minna. Prófar ketó, plöntumiðað, paleó, lágkolvetna, föstur. En mörin haggast ekki um gramm. Eina sem þú ert að tapa er vitglóran og lífsgleðin. Margir hoppa frá einum kúr til […]

Read More…

Lúxus súkkulaðimokkagrautur- prótínríkur og seðjandi

Þessi morgunmatur mun breyta lífi þínu. Hann stendur með þér langt fram að hádegi og títrar inn næringu meðan þú þrælar yfir tölvunni þar til bjallan hringir í löns og allir hermaurarnir flykkjast í mötuneytið.   Súkkulaðimokkabomba Innihald 50g haframjöl (ég nota Rude Health spíraða hafra) 1 msk Psyllium Husk trefjar klípa salt 1 msk […]

Read More…

Viltu hraðari grunnbrennslu? Lyftu þá lóðum.

Viltu hraðari grunnbrennslu? Viltu bræða fitu af lærum meðan þú situr á bossanum og horfir á síðasta þáttinn með Jóni Snjó í Krúnuleikunum? Þegar fólk heyrir um fitubrennslu kemur strax upp í hugann fleiri klukkutímar af þolæfingum. Slefandi á þrekstiga. Hlekkjaður við hlaupabretti. Sveittur eins og grís á teini á ræktargólfi. Þungar lyftingar eiga ekki […]

Read More…

Töff að vera tættur og tjásaður alla daga

Það er stöðutákn að hafa brjálað að gera. Allt á fullu er ógeðslega töff. Tættur og tjásaður alla daga. “Jæja… hvernig gengur?”  “Allt á fullu eins og alltaf?” Við setjum okkur kröfur sem fara með himinskautum um frammistöðu og fullkomnun í öllum verkefnum Ekki fært nema fuglinum fljúgandi að ná þeim. Velja afmælisgjafir og jólagjafir […]

Read More…

Grannur er ekki samnefnari við að vera heilsuhraust ræktarrotta

“….svo þekkir maður fullt af fólki sem borðar sykur en er samt tággrannt.” Þessi setning heyrðist úr viðtækinu í umræðu um sykurskattinn ógurlega sem nú sveimar yfir og allt um kring eins og koltvísýringur. Svona skilaboð ýta undir þá ranghugmynd að við getum dæmt heilsu einhvers út frá stærð líkamans Að vera grannur er ekki […]

Read More…

Ertu sósaður í súkralósa?

      Flest okkar myndum gjarnan vilja borða dísæta súkkulaðiköku með þeyttum rjóma án þess að þær kaloríur þrengi brók og belti. Af þeim sökum eigum við mörg í flóknu ástar-haturs sambandi við sætuefni. Þessi mólekúl sem slá á pervertískar langanir í sætabrauð sem herja á okkur þegar litli vísir nálgast fjögur á klukkunni […]

Read More…