Krullað í beygjurekkanum

Nú þegar herskarar af nýársheitungum streyma inn í ræktarsali landsins, er ekki úr vegi að skerpa aðeins á hvaða hegðunarreglur er mikilvægt að hafa í hávegum innan um galvaníseraðar járnstangir og gúmmíhúðaðar lóðaplötur. Því ef eitthvað fær hnakkahárin til að rísa, hnefana að kreppast og augun til að skjóta gneistum er það þegar fólk gengur […]

Read More…

Væntingavísitala janúarmánaðar

Nú ryðst janúarholskeflan inn í musteri heilsunnar með örvæntingafullan vonarneista í hjartanu að nú muni heilsusamlegur lífsstíll verða órjúfanlegur hluti af sjálfinu og skrokkurinn skarta draumaforminu. Þeir sem æfa og eru annað hvort að tálga smjör af skotti eða að bæta gæðakjöti á grindina eru oftar en ekki með rammskakka væntingavísitölu ? Algjörlega óraunhæfar og […]

Read More…

Þjökuð samviska

Nú er fyrsta vika janúarmánaðar mætt á svæðið og Móri frændi hefur sett upp tjaldbúðir í sálartetrinu með sjálfshótanir fyrir sukkið og skipuleggur refsiaðgerðir sem Rauðu Khmerarnir hefðu ekki átt roð í. Hvað gerðist? Þú sem hefur verið 100% við efnið í tálgun lýsis undanfarin misseri en misstir tökin yfir hátíðirnar. Ætlaðir að kannski laumast í […]

Read More…

Hvað er auðveldara en Hvernig

Splunkunýtt ár er mætt á svæðið, með 12 mánuði af nýjum möguleikum, 52 vikur af ónýttum tækifærum, 365 daga af  nýju upphafi. Hver hræða á byggðu bóli básúnar mannbætandi áramótaheit í statusum og tísti. Tvöþúsundogþrettán skal vera árið sem aukakílóin hypja sig, armbeygjur á annarri og fimmtíu dauðar upphífingar með tíu kílómetra hlaup á kantinum. Það […]

Read More…

Blóðgað bak

Hangikjöt, kalkúnn, hamborgarahryggur, rjúpur, sætar kartöflur, brúnaðar kartöflur, rísalamand, frómas, konfekt, sörur… ólympískt át undanfarinna daga liggur nú og gerjast í kviðarholinu. Fingur eru þrútnir, liðamót í mauki, augun sokkin, kviðurinn bjúgaður. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um hófsemi  eru enn ein jólin að baki þar sem þú fórst langt yfir strikið og tróðst í skjóðuna þar […]

Read More…

Ræktaður eða sukkaður

Jólin lúra handan við helgina og hvað er það fyrsta sem kemur upp í hugann? Ómannlegt magn af mat, jólasteik, smákökur, sósa, brúnaðar kartöflur, rísalamand, randalína, sörur und so weiter. “Fokk itt, skítt með það, fáum okkur meiri rjóma. Ég plokka þetta af á nýju ári”. Allur desember og jólin sjálf eru stór áskorun þar […]

Read More…

Hlegið í bankanum

Naglinn fær ofsakláða og eyrnabólgu þegar fólk vill endilega kjamsa á fitubrennslutöflum “til að flýta fyrir fitutapi”. Í fyrsta lagi vill Naglinn leyfa breyttu mataræði og æfingum hafa sín áhrif svo líkaminn læri sjálfur að vinna í verkefninu áður en gripið er til utanaðkomandi aðstoðar í formi dufthylkja. Í öðru lagi er stórkostlegt ofmat á […]

Read More…

Vigtin lýgur

Vigtin hefur áhrif á okkur öll, og þá sérstaklega okkur konur. Annaðhvort erum við syngjandi af gleði allan daginn yfir þeirri tölu sem kemur upp á skjánum borið saman við síðasta skipti sem við athuguðum, eða undir þrumuskýi allan daginn og jafnvel alla vikuna. Þyngd líkamans er upplýsingar. Það er allt og sumt. Hvað segir […]

Read More…

Lóð á ánægjuvogina – ummæli fjarþjálfunarkúnna

Það er fátt gleðilegra en þegar lærisveinarnir upplifa jákvæðar breytingar á heilsu, líkama og atgervi og að fá jafn falleg ummæli frá harðduglegum fjarþjálfunarkúnna örvar tárkirtlana hjá grjóthörðum Naglanum. “Hef verið að segja það við þig í huganum síðustu vikur. Fyrst er, að þú ert snillingur. Þegar maður er að byrja og er í því […]

Read More…

Gefðu þér tíma

Það er sorglega algengt að fólk sé með fáránlega óraunhæfar væntingar þegar kemur að fitutapi. Árangurinn á að vera bílhlöss af mör á örfáum vikum. En veruleikinn er nær alltaf annar. Þegar fitutap er tekið með skynsemi verður árangurinn oft hægari en hann verður hins vegar varanlegur þar sem við erum ekki að rústa brennslukerfinu […]

Read More…