Þægindasápukúlan

Við sem tætum í stálið fjóra til fimm daga vikunnar erum að leita logandi ljósi að auknum styrk og stærri vöðvum. En hvernig gerist það? Þar koma Newton og félagar ríðandi á hvítum hesti með lögmálin í hnakktöskunni. Ofhleðslu lögmálið (e.overload) er nefnilega grunnurinn að öllum árangri í þjálfun. Í styrktarþjálfun verður vöðvi ekki stærri […]

Read More…

Spaghetti bolognese – Naglavætt

Eitt það besta sem Naglinn veit er hakk spakk eða Spaghetti Bolognese eins og það heitir víst á frummálinu.  En þessi réttur er oft sósaður í kaloríum en í meðhöndlun Naglans er hægt að gera hann horaðri og hollari.   Naglinn er ekki hrifin af vakúmpökkuðum aukefnaúðuðum strimlum úr súpermarkaðnum og kaupir því Klump af […]

Read More…

Súkkulaðiís um háskaðræðistímann

Þið sem haldið að hollusta sé eingöngu kjúlli og brokkolí eruð svo langt aftur á svörtustu miðöldum að þið megið búast við heimsókn frá Hróa Hetti, enda mataræði ykkar líklega svipað spennandi. Frekar þið en Naglinn. Það má kokka endalaust af gúmmulaði úr hollu hráefni, eina sem þarf er ímyndunarafl og sköpunargleði.  Ef við höldum […]

Read More…

Hollustuvöfflur

Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu? Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat. Heilsu vöfflur 2 egg+ 1 eggjahvíta 3 tsk NOW psyllium Husk (má sleppa […]

Read More…

Holdugust á norðurhjara

Kinnar Naglans eru tárvotar af svekkelsi og súrheitum. Eftir sex ár af heilsuskrifum, mörg ár af nöldri, hundruði pistla, miljón ráðleggingar og hvar erum við stödd??? Brakandi fersk samnorræn könnun á mataræði, hreyfingu og holdarfari frá Landlæknisembættinu leiðir í ljós að gjaldþrota þjóð í kreppu er komin í fremstu röð holdugra einstaklinga á norðurhjara veraldar? […]

Read More…

Lóð á ánægjuvogina – ummæli fjarþjálfunarkúnna

Það er fátt gleðilegra en þegar lærisveinarnir upplifa jákvæðar breytingar á heilsu, líkama og atgervi og að fá jafn falleg ummæli frá harðduglegum fjarþjálfunarkúnna örvar tárkirtlana hjá grjóthörðum Naglanum. “Hef verið að segja það við þig í huganum síðustu vikur. Fyrst er, að þú ert snillingur. Þegar maður er að byrja og er í því […]

Read More…

Keisarinn er kolvetnasveltur

Kolvetnasnauðir kúrar eru fyrirbæri sem undanfarin misseri hafa troðið sér upp á sótsvartan pöpulinn eins og leiðinlegi frændinn í fermingarveislu. Þar sem slíkir kúrar hafa stuðlað að ÞYNGDARtapi á ógnarhraða eru þeir baðaðir rósrauðum bjarma og hylltir eins og nakti keisarinn forðum. En hversu mikið af þessu tapi er smjör og hversu stór hluti sem […]

Read More…

Allskonar fyrir aumingja

Það vita allir lesendur að Naglinn er  átsvín fyrir allan peninginn, og á sex gleðilegar stundir yfir daginn þegar snæðingum er raðað ofan í ginið.  En gríðarleg sorg fyllir kviðarholið yfir einhæfum og vondum mat, því túttan er með sætindaþörf á háu stigi og þarf að fá sínar daglegu hollu gúmmulaðiskombinasjónir úr búðingsáti, flöffi, kotasæluís […]

Read More…

Kotasælusæla

Það spretta tár af hvörmum Naglans þegar fólk dettur í nammipokann af einskærum súrheitum út í hollustuna. Það sorglega er að þessi grey eru í fangelsi eigin ímyndunarafls, þar sem það hímir eins og gína á húsþaki með enn eina ómerkilegu skyrdósina. Einhæfni og þurrelsi í snæðingum bjóða uppgjöfinni upp í dans og súkkulaðið verður […]

Read More…

Hinn alræmdi nammidagur

Margir hafa pervertískan áhuga á fyrirbærinu “nammidegi” og hvort hann sé æskilegur, leyfilegur eða bannaður samkvæmt íslenskum lögum í heilsusamlegum lífsstíl. Nýlega skapaðist einmitt umræða um þennan alræmda dag á blaðsíðum veraldarvefsins. Naglinn segir að ekki einungis er það leyfilegt fyrir okkur sem valhoppum heilsubrautina 90-95% tímans heldur er nauðsynlegt að fara út af sporinu […]

Read More…