Bakaður bláberjagrautur

Naglinn er pervert. Dónalegur grautarpervert sem liggur yfir uppskriftum eins og argasta klámi, og sleikir skálina af áfergju til að ná síðustu dreggjunum ofan í botnlausan hylinn sem magamálið er. Venjulega er gleðin kokkuð á eldstæði í grýtu í hinum ýmsu kombinasjónum, en nýlega ákvað Naglinn að stíga útfyrir sápukúlu vanans og prófa að baka […]

Read More…

Nestisblæti

Naglinn er með nestisblæti og fer helst ekki útúr húsi nema pökkuð af hollustu í pokahorninu, því ef hungrið sækir á svartholið og ekkert hollustutengt í skjóðunni hellist ofbeldishneigð, óhamingja og viðskotaillska yfir sálina og þá er voðinn vís. Með skjóðuna fulla af hollmeti minnkum við líkurnar á að gripið sé í majónesusósað eða sykurhúðað […]

Read More…

Sítrónulummur

Eggjahvítur spila stóra rullu í morgunstund Naglans þar sem þeim er slátrað samhliða grautargleði til að fá gæðaprótín í sársoltna vöðvana eftir föstu næturinnar. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem sleppa morgunverð eru feitari en þeir sem slafra í sig eftir að hafa slefað á koddann, því þeir bæta upp fyrir það með að borða […]

Read More…

Rabarbara-Ragga

Þar sem öll hólf og gólf í eldhúsi Naglans voru stútfyllt af ávextinum sem er stundum grænmeti, rabarbara, eftir sjoppingtúrinn yfir grensuna var ekki annað í stöðunni en að henda í einn grautarunað: Vanillugraut með bökuðum rabarbara….haaaalelúja, halelúja, haleeeeelúja. Þetta unaðslega kombó hefur ekki vætt varirnar síðan á haustmánuðum og ennþá nóg af rabarbarauppskeru sumarsins […]

Read More…

Kanilsnúður sem hækkar hamingjustuðullinn

Eitt það besta sem Naglinn veit er volgur kanilsnúður, nautnin af honum í munnholinu losar út endorfín í hættulegu magni eða kannski er það bara hinn stórhættulegi kanill sem veldur vímuáhrifum. Nýlega komu nefnilega fram þær fregnir að kanill í miklu magni væri varasamur heilsunni. Samkvæmt því ætti Naglinn að vera löngu komin undir græna […]

Read More…

Hollar kókoskúlur

Hver þarf dísykrað Bounty þegar þetta hollustu konfekt bíður spennt eftir að vera slátrað í ginið á kantinum. Þessar kókoskúlur eru sykurlausar og glúteinfríar og svo öööönaðslegar undir tönn aðeinu sinni smakkað og þú getur ekki hætt….. Pringles verður atvinnulaust… Súkkulaðikókoskúlur 10-12 stk 1 scoop NOW mysuprótín vanillu 10g kókosmjöl 20g kókoshveiti (Cocofina – fæst í Nettó) […]

Read More…

Franskt ristabrauð lummur

French toast er bragðafbrigði sem framkallar litla fullnægingu í munnholinu og fær því að slæðast með í eggjahvítupönnsur með reglulegu millibili.  Naglinn snæðir slíkar lufsur samhliða grautargleði í morgunsárið og sama prinsipp gildir fyrir þær eins og grautinn: Einhæfni er leiðin til glötunar.       Naglinn uppgötvaði þessa dásemd í pönnsur þegar bragðdropar frá […]

Read More…

“No-bake” prótínstykki

Margir af lærisveinum Naglans finnst hentugt að grípa í prótínstykki eða önnur svokölluð “heilsustykki” milli mála. Naglinn er þó alfarið á móti slíkum afurðum, ef afurðir skyldi kalla.Prótínstykki eru oftar en ekki unnin í öreindir, stútfullt af sykri og yfirleitt húðað með alvöru súkkulaði. Það er því oft sáralítill munur á þessum “heilsustykkjum” og útúrsykruðum […]

Read More…

Hollustusúkkulaðikaka… er hægt að biðja um það betra?

Það er fátt í þessari veröld sem gleður Naglann jafn heitt og súkkulaðikaka.  Og þeyttur rjómi á kantinum ætti að vera í lögum. Það er löngu skjalfest að síðasta kvöldmáltíðin verður þriggja rétta dinner af súkkulaðiköku með þeyttum rjóma í öllum máltíðunum. En það er víst ekki hægt að gúlla svoleiðis gúmmulaði alla daga án […]

Read More…