Uppáhalds dinnerinn – low-carb tortilla

Þessi dinner er í miklu uppáhaldi hjá Naglanum þessi dægrin.

Low-carb tortilla með horaðri hakkgrýtu og allskonar gúmmulaði.

Það ískrar í átvaglinu þegar þessari dásemd er sporðrennt í óseðjandi svartholið.

Low-carb tortilla

Innihald:

-Low-carb tortilla (keypt á Dialife.eu)
Hakkgrýta Naglans
-Horuð Tzatziki 
– Hummus
– Horaður ostur
– Gúrka
-Iceberg

Low-carb rúllur

Smyrja tortilluna með hummus og tzatziki.
Raða ostsneiðum og gúrku ofan á.
Slumma grýtunni yfir og dreifa vel úr.
Icebergið á toppinn.
Rúlla saman.

IMG_2131

IMG_2133

Naglinn sker rúlluna í tvennt til að auðvelda átið, og blekkja átvaglið að meiri matur sé í boði.

Troða í grímuna og smjatta vel.