Jarðarberjakókos grautur – bakaður

Þar sem annað fólk hefur eðlilegt magamál er Naglinn með óseðjandi svarthol. Sýnu verst er ástandið eftir slefið á koddann í átta tíma og garnagaulið ómar um stigaganginn og vekur hverfið.  Þá þarf að fóðra kvekendið med det samme með gúrmeti og gleðilegheitum í morgungraut svo báðir séu sáttir: átvaglið og heilsumelurinn. Naglinn notar mikið […]

Read More…

Súkkulaðibrjálæði í kaffibolla

Naglinn er með súkkulaðikökublæti. Sé tekið mið af greiningarviðmiðum geðlæknisfræðinnar valda klámfengnar fantasíurnar um hnausþykka lummu sem bráðnar í skoltinum oft óstarfhæfni. Þó valda þær aldrei vanlíðan því frygðinni er svalað “med det samme” og skellt í snarholla og horaða súkkulaðiköku í kaffibolla eða skál. Inn í örra í 2 mínútur og matargatið andar í […]

Read More…

Veldu þínar baráttur

Naglinn var einu sinni í yfirþyngd “Færið ykkur strákar, hún tekur alla gangstéttina þessi” “Slappaðu af í kexinu” “Þú þarft nú að endurskoða líkamsvöxtinn þinn.” “Svínka!”   Naglinn grennti sig “ Hún er örugglega með átröskun” “Þú ert orðin alltof horuð” “Mikið líturðu vel út.”   Naglinn byrjaði að hugsa um mataræðið “Ertu að borða […]

Read More…

Uppáhalds dinnerinn – low-carb tortilla

Þessi dinner er í miklu uppáhaldi hjá Naglanum þessi dægrin. Low-carb tortilla með horaðri hakkgrýtu og allskonar gúmmulaði. Það ískrar í átvaglinu þegar þessari dásemd er sporðrennt í óseðjandi svartholið. Innihald: -Low-carb tortilla (keypt á Dialife.eu) –Hakkgrýta Naglans -Horuð Tzatziki  – Hummus – Horaður ostur – Gúrka -Iceberg Smyrja tortilluna með hummus og tzatziki. Raða […]

Read More…

Gulrótakökumúffur

Naglinn myndi gjarnan vilja vera gulrótabóndi í Danaveldi því þessi appelsínugulu orkuhús eru eitt aðalnestismatur Baunabúans. Þeir skræla og skola og pakka þeim vandlega inn í álpappír. Svo má heyra “krönsj krönsj” úr hverju horni á skrifstofum, bókasöfnum, kennslustofum, strætóum. Stór ástæða fyrir þessum vinsældum eru líklega að gulrætur eru hræbilligar, c.a hundrað kall íslenskar […]

Read More…

Horað súkkulaðikrem

Naglinn gerir mjög oft diet-kók súkkulaðiköku eftir æfingu eða klístursköku á kvöldin fyrir svefninn og hefur verið að prófa sig áfram með horað krem ofan á lufsuna, því berrössuð kaka án krems er hreinlega sóun á áti. Tilraunastarfsemin hefur aðallega falist í hvaða bragðdropar gefa besta bragðið og eftir nokkrar lélegar, og margar la-la kombinasjónir…. […]

Read More…

Geislavirkur Nagli

Naglinn notar ekki naglalakk né hársprey, ber á sig kókosolíu eftir sturtu. Naglinn notar einungis sjampó, þvottaefni, sturtugel og svitalyktareyði án ilmefna, litarefna og parabena. Naglinn eldar nánast allan sinn mat frá grunni úr ferskum óunnum hráefnum (kjöt, grænmeti, gróft korn og ávexti). Naglinn drekkur aldrei áfengi, reykir ekki, tekur Omega-3, fjölvítamín, C-vítamín, D-vítamín á […]

Read More…

Grindhoruð súkkulaði-karamellu ostakaka

Eftir að hafa uppgötvað horaða ostaköku hefur þessu dýrðarinnar dásemd átt fastan sess í millimáltíðum Naglans og undir stöðugum bætingum og betrumbætingum. Aðallega hefur vinnan snúist að prófun á hinum ýmsu bragðdropum og hvaða brögð passa saman, og gleðja tungubroddinn. Á heimilinu er líka matkrítíker mikill í formi húsbóndans sem fékk sitt uppeldi hjá prófessjónal […]

Read More…

Svona rúllar Naglinn

Naglinn hefur áður talað um dásemdarmómentið sem Naglinn og lærisveinarnir eiga eftir harðkjarna járnrífingar. Þá fyllum við á birgðirnar með einföldum sykri úr öreindaunnum fabrikkuvörum til að hefja prótínmyndun og viðgerðarferlið. Sjá betur hér og hér Svona rúllar Naglinn eftir harðkjarna lyftingaæfingar. Mulið Oreo kex út í jarðarberjaflöff Diet kók súkkulaðikaka með horuðu kremi úr kakó […]

Read More…

Kanilsnúður fyrir sykursnúða

Hollur kanilsnúður sem tekur aðeins örfáar mínútur?? Ha?? Heyrði ég rétt….*skefurúreyrunum* Sem er líka gómsætur undir tönn og bara 130 kaloríukvikindi?? Og við erum ekki stödd á steppum Útópíu með Elvis og Tupac. Jamm jamm, góðir hálsar, klípið ykkur í handlegginn þar til koma marblettir, en svona er Danmörk í dag. Það er svo auðvelt að […]

Read More…