Naglinn hefur áður talað um dásemdarmómentið sem Naglinn og lærisveinarnir eiga eftir harðkjarna járnrífingar. Þá fyllum við á birgðirnar með einföldum sykri úr öreindaunnum fabrikkuvörum til að hefja prótínmyndun og viðgerðarferlið.
Svona rúllar Naglinn eftir harðkjarna lyftingaæfingar.
Mulið Oreo kex út í jarðarberjaflöff
Diet kók súkkulaðikaka með horuðu kremi úr kakó + sukrin flórsykri + eggjahvítu. Hrært þar til verður eins og súkkulaðikrem og skúbbað yfir kökuna.
Toppað með Walden Farms Caramel Dip og ferskum jarðarberjum. Flöff á kantinum notað eins og þeyttur rjómi
Allskonar amerískt öreindaunnið dísætt morgunkorn flæðir úr öllum skápum Naglans enda oft slafrað eftir járnrefsingar.
Hnausþykkur prótínbúðingur með Cocoa Puffs, Rice Krispies Treats, Rice Krispies Squares.
Soreen maltbrauð er yndislega mjúkt ávaxtabrauð sem Naglinn kaupir í UK. Með horuðum osti eftir æfingu og það ískrar í átvaglinu.
Horuð eplakaka er annar glaðningur sem rennur ljúft niður eftir lyftingar.
Ljóst kökumix blandað með diet sprite inn í örra í 2-3 mínútur. Toppað með eplachutney og þykkum vanilluprótínís.
Fitusnauður vanilluís með banana og jarðarberjum og Walden Farms súkkulaðisírópi.
Þegar allskonar gúmmulaði fyrir aumingja er ekki aðeins löglegt heldur afar nýtilegt, og brúkað nokkrum sinnum í viku er sykursnúðurinn sáttur og heldur KáJoð.
Svo ekki sé talað um grenjandi hvatninguna sem felst í þessu áti til að tuðrast á æfingu þegar allt þetta bíður slátrunar eftir járnrífingarnar.
Gleðilegt samviskubitslaust át!!
Pingback: Geislavirkur Nagli | ragganagli
Pingback: Sjoppað í Sverige. Vol. 2 | ragganagli