Gefðu þér tíma

Það er sorglega algengt að fólk sé með fáránlega óraunhæfar væntingar þegar kemur að fitutapi. Árangurinn á að vera bílhlöss af mör á örfáum vikum. En veruleikinn er nær alltaf annar. Þegar fitutap er tekið með skynsemi verður árangurinn oft hægari en hann verður hins vegar varanlegur þar sem við erum ekki að rústa brennslukerfinu […]

Read More…

Í-gær syndrómið

Úr baðherbergjum á landinu Ísa má heyra grátstaf og gnístran tanna þegar talan á vigtinni er komin út fyrir eigin velsæmisstaðal. Nei, nei, nei fru Stella, det går ikke!! Þú ert þreytt(ur) á að vera úr formi. Nú skal heldur betur gera eitthvað í málunum. Þurrkar grátstafinn úr kverkunum og girðir nærbuxurnar yfir útkýlda ístruna. Ferð […]

Read More…

Kona þarf megrun eins og fiskur þarf reiðhjól

Naglinn hefur reynt að halda í sér bölsótinu en getur ekki orða bundist lengur. Netmiðlar og tímarit gubba útúr sér heilu dálkunum af beinlínis heilsuspillandi ráðleggingum um fitutap með pervertískum áherslum á megrun og kílóatapi beindum að kvenpeningnum. Töfralausnir og ráðleggingar ríða húsum frá hinum og þessum kroppatemjurum sem hafa þann starfa að tálga grindhoraðar Hollívúdd […]

Read More…

Hvað ertu þung(ur)? Hverjum er ekki sama?

Naglinn heyrði á tal tveggja kvenna í búningsklefanum í ræktinni. Önnur stígur upp á vigtina en þá kemur hin aðvífandi og segir að vigtin sé biluð. “Úfff.. sem betur fer, þá fer maður allavega ekki pirraður inn í þennan dag.” HA??? Naglann langaði að standa upp og slá konuna utanundir. Læturðu málmklump ákvarða lífshamingjuna??? Í […]

Read More…

Rútínurask

“Ég fór í frí og datt út úr rútínunni og átti erfitt með að koma mér aftur í gírinn” Ef Naglinn ætti tíkall fyrir hverja slíka frásögn af falli af beinu brautinni mætti mæla þykkt bankabókarinnar í hekturum. Það er staðreynd að rútínurask er einn stærsti áhættuþáttur í að hendast útaf brautinni og oft þarf […]

Read More…

Ekkert tyggja má

Marsípanhúsin standa auð og enginn strollar um súkkulaðigöturnar. Það er ekki bara gestir Sælgætislands sem ekki mega bryðja kandís og sykursnúða. Ef marka má miðlana þarf sótsvartur almúginn að vara sig á mýmörgum matvælum því krabbameinið og fitan lúra handan við hornið snerti þau vélindað. Nú er illt í efni, ekkert tyggja má, ekki einu […]

Read More…

Keyser Söze

Tíminn líður sannarlega hratt þegar það er gaman að lifa. En það er ekki gaman þegar við erum í sorg og sút að neita okkur um lífsins gúrmeti.  Þess vegna sker það í hjartað þegar fólk velkist í vafa hvort það eigi að fá sér páskaegg á páskum. Halló!! Af hverju ekki í ósköpunum? Naglinn […]

Read More…