Þessi mokka næturgrautur er frábær fyrir kaffiafganginn úr könnunni. Þessi síðasta ískalda svarta lögg sem lúrir einmana í botninum enginn hefur lyst á og endar alltaf í vaskinum. Þannig stuðlarðu ekki einungis að hollustu, heldur einnig minni matarsóun.
2 dl Himnesk Hollusta haframjöl
4 dl ósætuð möndlumjólk (græn Isola)
2 msk NOW Psyllium Husk
2 msk chia fræ
1/2 bolli lagað svart kaffi
4 msk ósætað kakóduft (t.d Hershey’s)
4 tsk Rain Forest kakónibbur
5-6 dropar NOW Better Stevia English toffee
Settu öll innihaldsefnin í gamla sultukrukku og lokaðu og geymdu í kæli yfir nóttu. Þá er það eina sem þú þarft að gera um morguninn er að velta þér framúr vopnaður skeið og njóta með núvitund hverrar skeiðar. Því þú vilt aldrei að þessi máltíð taki enda.
Allt stöffið fæst í verslunum Nettó