Súkkó-kókos-kaffibollakaka með hnetusmjörssósu

Það dásamlega við jólin í útlöndum er að það er pollrólegt yfir vötnum. Lítið um tölvupósta, fáar símhringingar, engir fundir eða planlagðir hittingar. Svo það er hægt að dúlla sér í eldhúsinu við allskonar tilraunastarfsemi á gúmmulaðis hollustugleði og um að gera að nota þennan rólega tíma áður en janúar holskeflan ríður yfir í fjarþjálfuninni.

PhotoGrid_1388075027346

Súkkulaðikókoskaffibollaka

40g haframjöl (blandað í öreindir)

1 msk kókoshnetuhveiti (t.d Dr. Goerg)

1 msk NOW erythriol

½ tsk lyftiduft

2 tsk ósætað kakó (t.d Hershey’s)

2 eggjahvítur

65g stappaður banani

2 msk möndlumjólk (eða belju/soja)

NOW kókoshnetudropar

IMG_5343

1. Smyrja djúpa skál að innan með kókosolíu eða spreyja í spað með PAM. Öllu blandað saman með gaffli og örrað í 2-4 mín (tími fer eftir örranum) eða þar til orðin þurr að ofan og þungur knífur kemur skraufþurr uppúr kökunni. Leyfa að kólna í nokkrar mínútur áður en hvolft á disk.

Toppað með hlynsíróps-hnetusmjörssósu Naglans…. sem passar bæði með sætmeti og kvöldmeti.

Hnetusmjörssósa

PB2 eða hnetusmjör blandað með Walden Farms pönnukökusírópi eða Maple dropum, Sukrin og sjávarsalti.

20140103_201958

Hræra saman og hella yfir kökuna.

PhotoGrid_1388843747214

Algjör öööönaður með undanrennurjóma og horaðri súkkulaðisósu