Krydd lífsins

Fjölbreytni í mataræði er tugga sem Naglinn þreytist ekki á að þruma yfir lýðnum. Ríkisstefna í mataræði með örfá óspennandi matvæli á kantinum er gulltryggð aðferð til að snara sér útaf beinu brautinni á Formúlu hraða.

Að böðlast í gegnum bragðlausan kjúlla, skraufþurr grjón og einhæft brokkolí mun senda þig express í undirheima uppgjafarinnar og áður en þú veist er bullandi óhamingja komin í sinnið og Oreo kexið og kókið búið að fylla túlann.

En hvað í dauðanum skal kaupa í búðinni??

Það er ekki nema von að pöpullinn sé algjörlega ruglaður í skallanum því skilaboð netheima og pappírssnepla eru þvers á kruss og út og suður um hvaða mat “eigi, megi, skuli“ borða og hvað sé “fitandi, óhollt, hollt, æskilegt, krabbameinsvaldandi, ofurfæða”.

Stefna Naglans í þessum frumskógi er að hvers kyns öfgar eigi ekki adressu í heilsusamlegum lífsstíl.

Hrein, óunnin fæða og sem minnst af sykruðum vörum er það sem blífar til að halda heilsunni í blússandi gír.  Vopnuð skynseminni í matvörubúðinni komumst við klakklaust þaðan út með pokana sneisafulla af girnilegu hollmeti.

Hér kemur listi (ath! alls ekki tæmandi) yfir vörur sem ættu að rata ofan í innkaupakörfuna hjá heilsumelum.

Ekki er mælt með að kaupa allt af listanum… nema þið hafið fundið upp iPhone-inn og snýtið ykkur með Ragnheiði Jónsdóttur.

 

Prótíngjafar

Kjúklingabringur

Kalkúnabringur

Magurt hakk (4-7%)

Nautakjöt

Folaldakjöt

Svínalund

Rækjur

Hvítur fiskur (ýsa, steinbítur, þorskur, rauðspretta o.fl)

Feitur fiskur (lúða, lax, bleikja, makríll, síld, o.fl)

Túnfiskur í dós (í vatni)

Hrefnukjöt

Baunir

Skyr

Fitusnauð jógúrt

Fjörmjólk/Léttmjólk

Sojamjólk

Kotasæla

Egg og eggjahvítur

Grísk jógúrt

Kolvetni

Hýðisgrjón

Haframjöl

Weetabix

Sykurlaust múslí

Heilhveiti/Spelt pasta

Heilhveiti tortilla

Gróft cous cous

Bygg

Quinoa

Bulgur

Gróft brauð (Ráðskonu, Pumpernickel, Fittý)

Gróft hrökkbrauð

Flatkökur

Kartöflur

Sætar kartöflur

Hrískökur

Ávextir

Grænmeti

Tómatar í dós

Sólþurrkaðir tómatar (án olíu)

Fitugjafar

Ólífuolía

Kókoshnetuolía

Sesamolía

Hráar Valhnetur

Sesamfræ

Hráar Pekanhnetur

Náttúrulegt hnetusmjör

Náttúrulegt möndlusmjör (kostar reyndar hvítuna úr auganu)

Hráar Cashew hnetur

Hráar möndlur

Hráar heslihnetur

Ostur (26%)

Avocado

Ólífur

Sósur og krydd

Salsa

Sykurskert tómatsósa

Sojasósa

Sinnep

5% sýrður rjómi

Sykurskert Teryiaki (Kikkoman)

Hummus

Tzatziki

Edik (hvítvíns, rauðvíns, balsamic)

Sykurlaus síróp

Allskonar krydd, ferskar kryddjurtir, súputeningar, salt og fleira sem gefa lífinu gildi og bragðlaukunum gleði.

Gleðilegt át !!

One thought on “Krydd lífsins

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s