“No-bake” prótínstykki

Margir af lærisveinum Naglans finnst hentugt að grípa í prótínstykki eða önnur svokölluð “heilsustykki” milli mála. Naglinn er þó alfarið á móti slíkum afurðum, ef afurðir skyldi kalla.Prótínstykki eru oftar en ekki unnin í öreindir, stútfullt af sykri og yfirleitt húðað með alvöru súkkulaði. Það er því oft sáralítill munur á þessum “heilsustykkjum” og útúrsykruðum […]

Read More…

Það sem enginn sér

Um hvað snýst lífsstíllinn þinn? Ertu ein(n) af þeim sem byrjar daginn ofan á vigtinni með kökk í hálsi, klípur í kvið átján sinnum á dag, og grætur yfir spegilmyndinni. Undirhakan of síð, appelsínuhúðin múffutoppinn mætti selja í næsta bakaríi fyrir slikk. Kíló, sentimetrar, grömm, fatastærðir, gatið á beltinu.  Endalaus sjálfsákvarðaðir mælikvarðar sem ákvarða lífshamingjuna […]

Read More…

Hollur frappó

Það er fátt meira svalandi í sól og sumaryl en brakandi ferskt frappucino. En eitt svoleiðis kvikindi getur innihaldið 400-500 kaloríur Ef þú vilt ekki smyrja þig með aukakarólínum úr sykri og fitu. Hér er því uppskrift að einum laufléttum og hollum frappó   1 bolli möndlumjólk/sojamjólk/beljumjólk 1-2 tsk skyndikaffi 1-2 tsk gervisæta (Stevia, Splenda, […]

Read More…

Hindberjapönnsur

Það er greinilegt að sumarið er að aaaaalveg að detta inn. Allir etnísku grænmetismarkaðirnir á Norðurbrú gubbandi fullir af allskonar bústnum, íturvöxnum dásamlega girnilegum berjum. Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber… og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds. Morgungrautur með kirsuberjum og jarðarberjum og vanillu er næsta bæjarfélag við […]

Read More…

Ekkert tyggja má

Nú er illt í efni, ekkert tyggja má. Marsípanhúsin standa auð. Það er ekki bara gestir Sælgætislands sem mega ekki bryðja kandís og sykursnúða. Ef marka má miðlana þarf sótsvartur almúginn að vara sig á mýmörgum matvælum því krabbameinið og fitan lúra handan við hornið.   Þeir sem eru ekki reiprennandi í kaldhæðni skilja ekki […]

Read More…

Vogue og Cosmopolitan

Þegar Naglinn komst á kynþroskaskeiðið voru Vogue, Elle, Cosmopolitan og aðrir slíkir sneplar lesnir í öreindir. Glansandi síðurnar sýndu spjarir sem þóttu móðins þá stundina.  Tískustraumarnir voru þó yfirleitt aukaatriði við flettingarnar, því aðalmálið var að eyða orku í öfund út í skinhoraða skrokkana sem voru innanundir lörfunum.  Að hafa bil milli læra sem myndi […]

Read More…

Keyser Söze

Tíminn líður sannarlega hratt þegar það er gaman að lifa. En það er ekki gaman þegar við erum í sorg og sút að neita okkur um lífsins gúrmeti.  Þess vegna sker það í hjartað þegar fólk velkist í vafa hvort það eigi að fá sér páskaegg á páskum. Halló!! Af hverju ekki í ósköpunum? Naglinn […]

Read More…

Krydd lífsins

Fjölbreytni í mataræði er tugga sem Naglinn þreytist ekki á að þruma yfir lýðnum. Ríkisstefna í mataræði með örfá óspennandi matvæli á kantinum er gulltryggð aðferð til að snara sér útaf beinu brautinni á Formúlu hraða. Að böðlast í gegnum bragðlausan kjúlla, skraufþurr grjón og einhæft brokkolí mun senda þig express í undirheima uppgjafarinnar og […]

Read More…

Ræktarrottan

Þú veist að þú ert ræktarrotta þegar:   Alveg sama hvað þú setur oft í þvottavél, óhreinatauskarfan er alltaf full af sveittum íþróttafötum Þú kaupir engin ný matvæli nema að lesa utan á umbúðirnar fyrst Þú borðar fimm til sex smáar máltíðir á dag Þér finnst skrýtin tilfinning að vera EKKI með harðsperrur Þú skipuleggur […]

Read More…

Þú ert EKKI það sem þú hugsar

Um hvað ertu að hugsa núna? Hvað þig langar í eina sveitta slæsu með pepp-svepp og hvítlauksolíu? Eða tveggja hæða súkkulaðiköku… heita….með ís og þeyttum rjóma á kantinum. Og karamellusósu. Nei….skamm… svona hugsar maður ekki. fyrirgef mér faðir því ég hef syndgað. Saurugar hugsanir yfirgnæfandi og allt um kring.  Þrjátíu Maríubænir, naglabretti og vöndurinn á […]

Read More…