Snarhollur súkkulaðiís um háskaðræðistímann

Þið sem haldið að hollusta sé eingöngu kjúlli og brokkolí eruð aftur á svörtustu miðöldum og megið búast við heimsókn frá Hróa Hetti, enda mataræði ykkar líklega svipað spennandi.
Frekar þið en Naglinn.

Það má kokka endalaust af gúmmulaði úr hollu hráefni, eina sem þarf er ímyndunarafl og sköpunargleði.  Ef við höldum laukunum á tungunni hoppandi hamingjusömum heldur púkinn sig inni í búrinu sínu og leyfir okkur að taka listskautadans í friði og ró á beinu brautinni.

 

Eggwhite-icecream-4

Súkkulaðiís með sykurlausu Walden Farms súkkulaðisírópi. Það er ekki hægt að borða of mikið af súkkulaði… er það??

 

Súkkulaði eggjahvítuís

4-5 eggjahvítur (120-150g)
ögn af salti
1/2 tsk cream of tartar (fæst í bökunarhillum matvöruverslana)
2-3 tsk sætuefni (Naglin

n notar Sukrin eða Stevia)
1 msk ósætt kakó t.d Hershey’s (fæst í Kosti)
bragðdropar að eigin vali (t.d vanillu, karamellu, sítrónu, appelsínu: Stevia Sweet Leaf eða Now)

IMG_2778

1. Stífþeyta eggjahvíturnar með salti, cream of tartar og Stevia/Sukrin þar til vel stífar (engar dónahugsanir hér).

Hér má finna góðar leiðbeiningar um stífþeytingu á hvítum.

2. Hræra kakó og bragðdropum útí hvíturnar, alls ekki of lengi samt. 30-45 sek max.

3. Vefja plastfilmu utan um skálina og henda í frysti í 25-35 mínútur og hræra í blöndunni nokkrum sinnum á meðan.

Voilá…. ljúffengur og snarhollur ís með öööörfáum karólínum.

 

Eggwhite-icecream

 

2 thoughts on “Snarhollur súkkulaðiís um háskaðræðistímann

  1. Pingback: Vanillujarðarberja grautartriffli | ragganagli

  2. Pingback: 4-mínútna prótínkaka Naglans | ragganagli

Comments are closed