Hollur frappó

Það er fátt meira svalandi í sól og sumaryl en brakandi ferskt frappucino.

En eitt svoleiðis kvikindi getur innihaldið 400-500 kaloríur

Ef þú vilt ekki smyrja þig með aukakarólínum úr sykri og fitu.

Hér er því uppskrift að einum laufléttum og hollum frappó

 

  • 1 bolli möndlumjólk/sojamjólk/beljumjólk
  • 1-2 tsk skyndikaffi
  • 1-2 tsk gervisæta (Stevia, Splenda, Sukrin)
  • 5-6 ísmolar
  • 1 msk sykurlaust vanillu eða karamellu síróp (DaVinci/Torani )

Henda öllu gumsinu saman í blandara og röra eins og vindurinn.

Toppa með fitulausu Cool Whip (fæst í Hagkaupum) og ef þú vilt ganga á villtu hliðinni smá sykurlaust súkkulaðisíróp

 

Njótið þeirrar gulu og munið eftir sólarvörninni.

 

 

Leave a comment