Jarðarberjagumsgrautur

Naglanum þykir óendanlega skemmtilegt að dúllast í eldhúsinu og prófa sig áfram í allskonar hollustutilraunum.

Þar sem danskurinn notar fersk jarðarber um áramót flæða þessi unaðslegu ber útúr verslunum nú um háskaðræðistímann. Að sjálfsögðu  greip Naglinn gæsina á lofti og fjárfesti í bakka og hugsaði gott til glóðarinnar í að nota berin góðu í grautarkombó.  Útkoman varð vægast sagt unaðsleg.

Jarðarberjagums:

150g jarðarber skorin smátt
1/2 msk sætuefni (Naglinn notar Sukrin)

Setja saman í pott og leyfa suðunni að koma upp.  Lækka þá niður og leyfa að malla í 10-15 mínútur eða þar til orðið að mauki.
Hægt að gera kvöldið áður og geyma í boxi í ísskápnum til morguns.

Klassískur hafragrautur:

haframjöl (magn eftir þörf/smekk)
1-2 tsk kanill
1 tsk sjávarsalt
2 tsk Chia fræ
1-2 tsk Husk (má sleppa)
Dass vatn (magn eftir þykktarsmekk)
Hræra 3/4 af jarðarberjagumsinu saman við tilbúinn hafragraut og skreyta með restinni af gumsinu.

Jarðarberjagumsgrautur

One thought on “Jarðarberjagumsgrautur

Leave a comment