Ræðan í afmælinu þínu

Við erum stödd í afmælinu þínu. Stuð og stemmning.Fjör á fjórtán.Gin og tónik í vélindanu.Þröngir leðurjakkar.Bleiserar og brilljantín.Í útópískri framtíð þar sem við megum aftur fara í partý og hitta fólk í kjötheimum. Syngja saman. Dansa uppvið hvert annað. Knúsa mann og annan.

KLING KLING KLING

Sigga vinkona þín lemur í glas og biður um þögn í salnum til að halda ræðustúf.

Það er lækkað í steríógræjunni sem gubbar út Helga Björns og pöbbum sem fella ekki tár.

Mannskapurinn sussar hver á annan. Mig langar að halda ræðu um hana vinkonu mína.

Hún er mín allra besta vinkona af því hún er svo mjó.

Það sem ég kann best að meta við hana eru horuðu lærin hennar.
Hún veitir mér skjól og traust með að borða bara salat.
Hennar eiginleiki að telja hverja einustu kaloríu ofan í sig valdeflir mig í mínum verkefnum.
Lága fituprósentan hennar er innblástur í lífinu.
Að hún fari svöng að sofa sýnir mér hetjudáð sem ég vil tileinka mér.
Samviskubitið sem hríslast um hana eftir að borða súkkulaðimola og refsiaðgerðirnar sem fylgja er aðdáunarvert.
Sjálfsaginn að fara í ræktina alla daga er tilfinningalegur stuðningur við mig.
Að hún vigtar sig á hverjum degi sýnir djúpa samkennd og skilning á mínum vandamálum.

Slík ræða hefur aldrei verið haldin. Mun aldrei verða haldin.

Það man enginn eftir kviðvöðvunum þínum.
Öllum er skítsama um hlutfall fitu og vöðva í líkama þínum.
Ást móður þinnar er ekki háð því hvað þú ferð oft í ræktina.
Vinkona þín elskar þig hvort sem flettast dellur yfir sokkabuxnastrenginn.
Umhyggja föður þíns fyrir þér er ekki fólgin í að þú kroppir eins og spörfugl í spínatblöð.
Börnunum þínum er drull hvað þú ert þung.
Fólk metur þig útfrá hvernig því líður í návist þinni.
Þyngdin á útgeisluninni þinni.
Stærð persónuleikans þíns.
Ummálið á umhyggjunni þinni.
Kílógrömmin á ástúð þinni.Fólk veltir ekki fyrir sér hversu mikið pláss þú tekur í rýminu.

Heldur hversu mikið pláss þú átt í huga þeirra.
Samkenndin sem þú sýnir.
Traustið sem þau finna.
Skilningurinn sem þú úsar út.

Hafðu það í huga næst þegar þú ætlar að meta virði þitt sem manneskju út frá brókarstærð eða kílóatölu.

Greyptu það í harða drifið næst þegar þú tætir sjálfið niður fyrir að slafra súkkulaði eða sleppa ræktinni.Þú ert svo miklu meira en skelin.