Naglinn gerði eitt sinn óvísindalegakönnun á því hvað fólk telur eðlilegan hitaeiningafjölda fyrir fitutap og hefur grátið sig í svefn yfir þeim fjölmörgu sem töldu 1000 eða 1200 kvikindi vera ákjósanlega tölu.
Jú það er fínt ef þú ert 50 kíló en þá er harla ólíklegt að þú þurfir að missa mikið af fitu.
En fyrir fólk í yfirþyngd sem vill missa fitu til að komast nær kjörþyngd er slíkt mataræði nær því að vera sultur og seyra.
Hver vill lifa á hungurmörkum? Af hverju að gera lífið að slíkri kvöl og pínu??
Tólfhundruð lufsur nægja rétt til að halda lágmarks virkni líkamans gangandi hjá meðal manneskju og þá á eftir að knýja áfram átökin í ræktinni, og halda þér gangandi í gegnum vinnudaginn, sjáum börnin, versla í matinn og det hele.
Naglinn verður döpur í hjartanu að heyra að enn sé sárasaklaus pöpulnum talin trú um að 1200 hitaeiningar sé lykillinn til að opna allar gáttir svo lýsið leki á ógnarhraða. Þetta endemis kjaftæði er sagt bæði við 100 kg karlmann og 60 kg konu.
HALLÓ!!! Þetta er ekki “one size fits all.”
Ákjósanlegur daglegur hitaeiningafjöldi fyrir fitutap fer eftir þyngd hvers ogeins, og er því afstæð.
Hummer eyðir meira bensíni en Yaris. Sama gildir um mannskepnuna.
Það krefst meiri orku að knýja áfram stærri líkama.
Efnaskiptin fara í hönk þegar við kroppum eins og spörfugl, því líkaminn túlkar að nú sé hungursneyð og harðneitar að láta fituna af hendi því hún er langtímaforðinn. Honum er hinsvegar skítsama um vöðvakvikindin, þau eru hvort sem er svo orkufrek og hrifsa til sín þessar örfáu skitnu kaloríur sem láta sjá sig. Afleiðingin er snarlækkaður grunnbrennsluhraði þar sem vöðvatutlurnar eru á bak og burt. Þyngdin hefur þar af leiðandi lækkað (vöðvavefur er þyngri en fituvefur), og viðkomandi hoppar hæð sína af gleði í villu og svíma.
Adam er nefnilega ekki lengi í Paradís þegar í ljós kemur að lati fituvefurinn er enn á sínum stað og fötin passa alveg jafn illa.
Frekari tilraunir til fitutaps í framtíðinni eru vægast sagt grátlegar, enda eru vöðvarnir sem sjá um að halda grunnbrennslunni í botni ekki lengur í partýinu og því þarf alltaf að lækka og lækka kaloríurnar til að grennast.
En hversu mikið neðar geturðu farið ef þú byrjaðir í 1200 hitaeiningum? Ætlarðu niður í 1000 kvikindi, sem er varla nóg til að haldameðalstórum hvolpi gangandi?
Þess vegna er betra að byrja í eðlilegum fitutaps hitaeiningafjölda til að geta svo skorið niður, án þess að hengja þig á horrimina með bláa tungu af sulti.
Til þess að finna út hvaða hitaeiningar þarf til að missa fitu er best að finna út í hvaða hitaeiningafjölda þú viðheldur núverandi þyngd. Þumalputtareglan er að reikna líkamsþyngd og margfalda svo með 30-32 og draga svo 20% frá þeirri tölu og þá ertu komin(n) með ágætis viðmið fyrir fitutaps hitaeiningafjölda.
Tökum dæmi um einstakling sem er 80 kg * 32 = 2600 hitaeiningar. Margföldum svo þessar 2600 með 0.80 til að fá 20% og fáum út 2000 hitaeiningar. Fyrir þennan Jón Jónsson er því gott að byrja að smjatta á 2000 yfir daginn ef planið er að skafa mörina.
Það er svo mikilvægt að aðlaga eftir árangri eða árangursleysi.
Ertu að missa á eðlilegum hraða, 300-500 grömm á viku? Eða ertu að missa ofhratt og hætta á að ganga á vöðvamassann? Ertu kannski ekkert að missa?
Til að fylgjast með árangri er því gott að mæla sig á 2-4 viknafresti til að geta gert breytingar upp eða niður eins og þarf.
Í guðs bænum hættið að hlusta á bábiljuna um 1200 hitaeiningar…það passar fínt ef þið eruð í dauðadái.