Naglinn er sérlegur talsmaður á neyslu fiskiolíu og ætti eiginlega að vera á umboðslaunum hjá fiskvinnslum og fiskiolíuhylkjaframleiðendum.
Fiskiolía eða Omega – 3, er lífsnauðsynleg fjölómettuð fitusýra sem þýðir að líkaminn getur ekki búið þær til sjálfur og þarf því að fá þessar dúllur úr fæðu eða bætiefnum.
“Fuss og svei, til hvers ætti ég að smjatta á slíku? Maður ropar bara vondu bragði”
Ástæðurnar eru svo margar að Naglinn fær valkvíða hvar á að byrja.
Í fyrsta lagi fyrir litla pumpuna í brjóstkassanum.
Hjarta – og æðasjúkdómar eru alls óþekktir hjá nágrönnum okkar eskimóunum á Grænlandi, þrátt fyrir að fita úr fiski sé aðalstjarnan í mataræði þeirra.
Þessi staðreynd ýtti við dönskum rannsakendum og í ljós kom að tvær sýrur… ekki smjörsýra þó… DHA og EPA láta sér fátt mannlegt óviðkomandi þegar kemur að bættri heilsu,
Á verkefnaskrá þeirra er meðal annars að lækka LDL kólesterólið (þetta Leiðinlega), auka blóðflæði, styrkja æðaveggina, lækka blóðfitu, stuðla að betri blóðstorknun og lækka blóðþrýsting.
Félagarnir DHA (docosahexaenoic acid) og EPA (eicosapentaenoic acid eru voða skotnir í öllu fiskmeti eins og laxi, makríl, sardínum og túnfiski.
Hinsvegar systir þeirra hún ALA, kúrir frekar í hörfræjum og valhnetum.
Hún er ekki eins vinsæl í bekknum, því það þarf að breyta henni fyrst í EPA, síðan í DHA til að hún nýtist sem best.
Til þess að græða sem mest á þessari familíu er því best að knúsa bara bræðurna EPA og DHA.
Nútímamaðurinn fær því miður ekki nóg af Omega-3 úr fæðunni, en slafrar hinsvegar í sig yfirdrifið af frænkum hennar Omega- 6 og 9 úr jurtaolíum.
Þess vegna er ráðlegt að borða fæðu sem er rík af Omega-3 til dæmis úr feitum fiski (lax, makríl, silungi, lúðu og fleirum), eða fjárfesta í fiskiolíubelgjum og gúlla nokkra slíka á dag.
EPA og DHA stuðla að minni bólgumyndun í líkamanum sem er afar jákvætt fyrir okkur sem refsum járninu, því það minnkar líkur á vöðvaskemmdum. Minni bólgumyndun er einnig mjög jákvætt fyrir liðina og fiskiolía löðrar þá í smurningi og dregur úr morgunstífleika og sársauka hjá gigtarsjúklingum.
Ekki má gleyma að heilinn er einn stærsti neytandinn á DHA og geymir meira en 20 grömm af því.
Ekki nóg með það, heldur stuðla þeir félagar að myndun á mýelínslíðri utan um frumur. Það hefur ekki einvörðungu jákvæð áhrif á hjartað og vöðvavöxt heldur einnig á gráa og hvíta gumsið í hauskúpunni því það stuðlar að vexti á nýjum heilafrumum.
Skilaboðin renna því eins og á listskautum um núðluna og við erum skarpasti hnífurinn í skúffunni og líkur á á elliglöpum og Alzheimer snarminnka.
Á meðgöngu og brjóstagjöf eru DHA og EPA nauðsynlegri en regnhlíf í Vík í Mýrdal. Mamma gamla þarf að veita hvítvoðungnum þær til að heilabörkur og sjónhimna þroskist eðlilega.
Til þess að njóta alls hins besta sem fiskiolía hefur upp á að bjóða fyrir musterið okkar hefur National Institute of Health í Ammeríkunni ráðlagt 1 gramm af DHA og EPA á dag.
Algengast er að 180mg af DHA/EPA séu í 1000 mg belgjum sem þýðir að við kyngjum 4-6 slíkum belgjum á dag til að valhoppa af gleði og heilsu.
Naglinn notar Omega-3 fiskiolíu frá NOW sem fæst í flestum matvöruverslunum landsins bláa.
Heimild: Oil of Pisces
Pingback: Allskonar fyrir aumingja | ragganagli